Tveir bústaðir eru 30 fermetrar, með einu svefnherbergi með 2 hágæða uppábúnum rúmum og fataskáp, baðherbergi með sturtu, alrými með flatskjá og svefnsófa. Hægt er að loka alrýminu með rennihurð. Einnig er eldhúskrókur í alrýminu með helluborði, ísskáp, örbylgjuofni, gufuofn (air fryer), ristavél, kaffivél og hraðsuðukatli. Gólfhiti er í öllum herbergjum í húsunum. Í kringum húsin er stór verönd með glugga til norðurs, grilli, borði og stólum.
Þriðji bústaðurinn er 50 fermetrar með einu svefnherbergi með 2 hágæða uppábúnum rúmum og fataskáp, baðherbergi með sturtu, alrými með flatskjá, stórum svefnsófa og einu uppábúnu rúmi. Hægt er að loka alrýminu með rennihurð. Einnig er eldhúskrókur í alrýminu með helluborði, ísskáp, örbylgjuofni, eldavél með bakaraofni, ristavél, kaffivél og hraðsuðukatli. Gólfhiti er í öllum herbergjum í húsunum. Í kringum húsið er stór verönd með glugga til norðurs, grilli, borði og stólum.
Fjórði bústaðurinn er 40 fermetrar, með tveimur svefnherbergjum, einu með hjónarúmi og einu með kojum. Rúmin eru öll uppábúin. Baðherbergið er með sturtu, stofan með flatskjá og svefnsófa og eldhúskrók. Þar er helluborð, gufuofn (air fryer), ísskápur, örbylgjuofn, ristavél, kaffivél og hraðsuðuketill. Húsið er með veggofnum. Í kringum húsið er stór verönd með glugga til norðurs, grilli, borði og stólum.
Sameiginlegur heitur pottur með frábæru útsýni í 50 metra fjarlægð frá húsunum. Greiðfært er til Akureyrar alla daga ársins. Hægt er að óska eftir barnarúmum. Ókeypis bílastæði við húsin. Frítt WiFi. Innritun frá kl 15:00 Húsin þarf að losa kl 11:00 á brottfarardegi. Á húsunum eru lyklabox.
Hlýlegir og bjartir bústaðir í hjarta Eyjafjarðarsveitar, í 14 km fjarlægð frá miðbæ Akureyrar. Sundlaug Eyjafjarðarsveitar og Jólagarðurinn eru í 2 km fjarlægð. Hvert sem litið er blasir við stórkostleg náttúrufegurð Eyjafjarðarsveitar.