About Us

Frá og með 1. nóvember verður einungis opið fyrir pantanir. Pöntunarsími 851 1360.

Silva er grænn veitingastaður í hjarta Eyjafjarðarsveitar sem býður gestum sínum upp á eldaða grænmetisrétti og hráfæðirétti ásamt hollum kökum og eftirréttum. Þar má einnig fá nýhrista þeytinga og nýpressaða safa, hveitigras- og engiferskot. Kaffi, te og kakó er ávallt lagað úr lífrænum afurðum.

Aðaláherslan er á góðan og fjölbreyttan matseðil með réttum sem framleiddir eru úr úrvals hráefni og henta öllum aldurshópum.

Á Silvu er alltaf val um þrjá rétti dagsins, súpu og brauð, heitan grænmetisrétt eða hráfæðirétt. Auk þess er boðið upp á ýmis konar smárétti s.s. vefjur, smákökur og ávaxtapinna.

Á Silvu er afslappað andrúmsloft, stórkostlegt útsýni og vönduð og persónuleg þjónusta.

Eigendur Silvu eru Kristín Kolbeinsdóttir og Grettir Hjörleifsson sem einnig búa á staðnum. Kristín er framkvæmdastjóri og sér alfarið um reksturinn. Hana er hægt að nálgast í síma 851 1360 á opnunartíma og 861 4078 utan opnunartíma.